• 1. Object
  • 2. Object

4.1° - SSV 6.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Lög

LÖG GOLFKLÚBBSINS ODDS
6. desember 2022

I. Heiti, heimili og hlutverk

1. grein.
Félagið heitir Golfklúbburinn Oddur, (GO). Heimili þess og varnarþing er í Urriðavatnsdölum, 210 Garðabæ. Félagið er aðili að Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK), Golfsambandi Íslands (GSÍ) og Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ).

2. grein
Tilgangur og markmið GO er á hverjum tíma að glæða og viðhalda áhuga á golfíþróttinni, að vinna að framgangi hennar og annarri félagsstarfsemi er tengist íþróttinni. Félagið rekur golfvelli og skapar félögum aðstöðu til golfiðkunar.

II. Félagsmenn

3. grein
Félagar geta allir orðið sem hafa áhuga á að styðja tilgang félagsins og óska aðildar með skriflegri umsókn. Inntaka nýrra félaga er háð samþykki stjórnar. Stjórn ákveður hámarksfjölda félagsmanna hverju sinni miðað við þá aðstöðu til golfleiks sem félagið getur boðið hverju sinni. Æski fleiri félagsaðildar en unnt er að verða við skal setja umsækjendur á biðskrá. Stjórn skal setja og birta reglur um biðskrána.

4. grein
Samþykktur umsækjandi telst félagsmaður og fer á félagaskrá er hann hefur greitt ákvörðuð gjöld. Um félagsaðild og þátttöku félagsmanna á golfmótum skal farið að lögum og reglum Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ) og Golfsambands Íslands (GSÍ).

5. grein
Árgjöld og inntökugjöld skulu ákveðin á aðalfundi til eins árs í senn.

6. grein
Innheimta árgjalda hefst eftir aðalfund. Árgjald skal greitt eða frá greiðslu þess gengið fyrir 1. mars ár hvert. Hafi árgjald ekki verið greitt fyrir 1. apríl er félagsstjórn heimilt að fella viðkomandi af félagaskrá og taka inn félaga af biðskrá í hans stað. Stjórn félagsins er heimilt að bjóða félagsmönnum upp á greiðsludreifingu árgjalda með greiðslukortum eða öðrum viðurkenndum greiðsluaðferðum. Skilyrði er að félagið beri ekki kostnað af slíkum samningum. Úrsögn úr félaginu er bundin við áramót, enda berist hún  skrifstofu félagsins fyrir lok desembermánaðar.

7. grein
Við golfleik skal farið eftir St. Andrews golfreglum eins og þær eru á hverjum tíma og þeim reglum sem GSÍ setur. Svo fremi sem þessar golfreglur banna ekki, getur stjórnin sett sérreglur (staðarreglur) um golfleikinn og um umgengni og annað sem henni þykir þurfa hverju sinni.

8. grein
Félagsmenn og aðrir kylfingar eru skyldugir að fara eftir þeim golfreglum sem gilda á hverjum tíma enda sér stjórnin um að þær séu nægilega kynntar og aðgengilegar. Stjórnin skal setja reglur um skráningu rástíma, leikhraða, umgengni og framkomu á golfvöllunum og í klúbbhúsum. Stjórnin getur bundið rétt til þess að leika á aðalvelli félagsins við
forgjafarlágmark. 
Brjóti félagsmaður alvarlega eða ítrekað gegn reglum félagsins getur stjórnin beitt viðkomandi viðurlögum sem geta verið áminning, tímabundinn missir réttinda til þess að mega skrá rástíma, tímabundinn missir réttinda til þess að leika á golfvöllum félagsins eða brottvísun úr félaginu. Sömu reglur gilda um aðra kylfinga eftir því sem við á. Stjórnin getur skipað aganefnd til þess að fara með agavald sitt. rottvísun úr félaginu skal þó ætíð háð samþykki stjórnar.

III. Stjórn

9. grein
Kjörgengir til stjórnarstarfa eru lögráða félagsmenn.

10. grein
Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum sem kosnir eru á aðalfundi. Formann félagsins skal kjósa sérstaklega til eins árs í senn, aðra stjórnarmenn til tveggja ára í senn, þannig að tveir þeirra eru kosnir annað hvert ár. Komi til þess að stjórnarmaður hætti í stjórn á fyrra starfsári er heimilt að kjósa stjórnarmann til eins ár svo að tryggt verði að tveir stjórnarmenn verði kosnir á hverjum aðalfundi.

Formaður félagsins er aðalforsvarsmaður þess og kemur hann fram fyrir hönd félagsins og stjórnar þegar við á auk þess sem hann stýrir stjórnarfundum og sinnir öðrum þeim verkefnum sem stjórnin kann að fela honum og lög heimila.
Á aðalfundi skal jafnframt kjósa tvo varamenn, fyrsta og annan varamann, í stjórn til eins árs í senn. Í forföllum aðalmanna skulu varamenn kallaðir til í þeirri röð sem þeir voru kosnir. Varamenn mega sitja alla stjórnarfundi í félaginu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisrétt hafa varamenn aðeins í forföllum aðalmanna.
Stjórnarmenn og varamenn má endurkjósa.
Á aðalfundi skal kjósa þriggja manna kjörnefnd, sem starfar í eitt ár.  Tilkynningar um framboð til embætta skulu berast skrifstofu Golfklúbbsins Odds, eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.  Hafi ekki nægjanlegur fjöldi gefið kost á sér á þeim tíma er kjörnefnd heimilt að framlengja framboðsfrestinn enda sé það tryggilega tilkynnt félagsmönnum.  Hafi þrátt fyrir það eigi borist næg framboð skal kjörnefnd hlutast til um að afla nauðsynlegs fjölda framboða.  Að framboðsfresti liðnum skal kjörnefnd kynna frambjóðendur á heimasíðu klúbbsins og/eða með öðrum tryggum hætti.

11. grein
Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund skiptir stjórnin með sér störfum þannig að einn skal vera varaformaður og staðgengill formanns, einn ritari, einn gjaldkeri og einn meðstjórnandi. Þá skipar stjórnin í nefndir og ráð sem starfa á vegum félagsins og tilnefnir í nefndir og ráð sem það á aðild að.

12. grein
Á aðalfundi gerir formaður stjórnar, eftir því sem unnt er, grein fyrir fyrirhugaðri starfsemi félagsins á væntanlegu starfsári. Einnig skal kynna fjárhagsáætlun og fyrirhugaðar kostnaðarsamar nýframkvæmdir.

13. grein
Stjórnin ræður félaginu framkvæmdastjóra og ákveður ráðningarkjör hans. Framkvæmdastjóri stýrir daglegum rekstri félagsins í samræmi við stefnumörkun stjórnar. Stjórnin skal leitast við að tryggja félagsmönnum nægilegt framboð golfkennslu með ráðningu golfkennara.
Heimilt er stjórninni að greiða mönnum beinan kostnað sem leiðir af störfum þeirra fyrir félagið.

14. grein
Stjórnin ákveður sjálf starfstilhögun sína. Stjórnin kemur fram fyrir hönd félagsins og ræður málefnum þess með þeim takmörkunum sem lög þessi setja og ber ábyrgð gerða sinna fyrir aðalfundi. Stjórnin kemur fram fyrir hönd félagsins í fullu umboði hans í öllum málum sem hann varðar en þó þarf samþykki félagsfundar til stórra ákvarðana sem hafa mikil fjárútlát í för með sér. Stjórnin skal rækta samband við félagsmenn og kynna þeim mikilsverð mál er varða starfsemi félagsins á félagsfundum eða opnum stjórnarfundum.
Á vegum stjórnarinnar skulu að jafnaði starfa eftirtaldar nefndir: Mótanefnd, Vallarnefnd, Aganefnd, kvennanefnd og afreksnefnd.*

15. grein
Fyrir einstök og verðskulduð störf í þágu félagsins getur stjórnin gert að tillögu sinni að aðalfundur ákveði að tiltekinn félagsmaður, einn eða fleiri, verði gerður að heiðursfélaga. Heiðursfélagar greiða ekki árgjald en njóta allra félagsréttinda. Tilnefningunni skal fylgja sérstakt skjal til staðfestingar. Á sérstökum tímamótum getur stjórnin veitt félagsmönnum og/eða velunnurum félagsins heiðursmerki og/eða afreksmerki félagsins í samræmi við reglur
sem um slíkt gilda.

IV. Aðalfundur

16. grein
Aðalfundur er æðsta úrskurðarvald í öllum málefnum klúbbsins. Aðalfund skal halda fyrir 10. desember ár hvert.
Aðalfund og aðra félagsfundi skal auglýsa með viku fyrirvara, á heimasíðu félagsins, með tölvubréfi og á öðrum miðlum félagsins. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá.

17. grein
Aðalfundur er löglegur og ályktunarhæfur um öll málefni sé löglega til hans boðað. Afl atkvæða ræður úrslitum á fundum. Atkvæðisrétt hafa allir lögráða félagsmenn. Aðalfundur skal kjósa fundarstjóra og ritara eftir tilögu stjórnar. Fundargerðin skal síðan undirrituð af fundarstjóra, fundarritara og viðstöddum stjórnarmönnum og skoðast hún sem rétt sönnunargögn um ákvarðanir fundarins. Fundarstjóri og ritari skulu ganga frá fundargerðum. Fundargerð skal birta á heimasíðu félagsins innan tveggja vikna frá aðalfundi.

18. grein
Dagskrá aðalfundar skal vera:
1. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
3. Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar.
4. Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna skv. 19. gr. ef einhverjar eru.
5. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
6. Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár. Fjárhagsáætlun næsta árs kynnt.
7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
9. Kosning 3ja manna í kjörnefnd.*
10. Önnur málefni ef einhver eru.

19. grein
Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi þess og skal tillögum til lagabreytinga eða um breytingar á starfstilhögun skilað til stjórnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. Nái tillaga til lagabreytingar samþykki 2/3 (tveggja þriðju hluta) greiddra atkvæða fær hún gildi.

20. grein
Stjórnin getur boðað til félagsfundar ef henni þykir henta. Stjórninni er skylt að halda félagsfund ef 1/10 félagsmanna óskar þess. Slíkan fund skal halda innan þriggja vikna frá því að skrifleg beiðni og rökstuðningur hefur borist stjórninni. Fundinn skal boða með sama hætti og reglulegan aðalfund.

V. Ýmis ákvæði

21. grein
Komi fram tillaga um að félaginu skuli slitið skal hún tekin fyrir á sérstökum fundi sem stjórnin boðar til með sama hætti og aðalfund. Fundurinn er ályktunarhæfur ef minnst tveir þriðju félagsmanna sækja fundinn og tveir þriðju fundarmanna samþykkja tillögu þess efnis.
Sé þátttaka ekki næg má boða til fundar á ný og halda hann innan þriggja vikna. Sá fundur er ályktunarhæfur án tillits til fundarsóknar og fær tillagan gildi ef 2/3 fundarmanna samþykkja hana.

22. grein
Reikningsár klúbbsins er frá 1. nóvember til og með 31. október ár hvert.

23. grein
Lög þessi öðlast þegar gildi.