11/09/2024
Nýlega undirritaði Garðabær nýja samstarfssamninga við golfklúbbana í Garðabæ þar sem meginmarkmið í nýjum samningi verður að halda áfram að vinna að því að efla barna og unglingastarf í golfi hjá Golfklúbbnum Oddi og nágrannaklúbbum okkar.
Á heimasíðu Garðabæjar segir:
“Með samningum Garðabæjar við golfklúbbanna er lögð sérstök áhersla á að mæta þörfum fatlaðra barna og ungmenna í samræmi við stefnu bæjarins í málefnum fatlaðs fólks. Einnig að vinna áætlun varðandi eineltismál byggða á forvarnarstefnu og samskiptasáttmála Garðabæjar. „Það hefur verið afar ánægjulegt að sjá hversu mikil ásókn hefur verið í öfluga ungmennastarfið sem golfklúbbarnir bjóða upp á og geta stutt við það,“ segir Almar Guðmundsson um samstarfssamningana við golfklúbbana þrjá. Nýir samningar gilda til ársloka 2025. ”
Kári H. Sölmundarson formaður GO undirritaði samninginn fyrir hönd GO og myndin hér fyrir er tekin af heimasíðu Garðabæjar.