Golfklúbburinn Oddur mun standa fyrir barna- og unglinganámskeiðum sumarið 2016. Vakin er sérstök athylgi á því að allir þeir sem skráðir eru á námskeiðin fá að auki Ljúflingsaðild í sumar og verða félagar í Golfklúbbnum Oddi. Sérstakur afsláttur er veittur fyrir foreldra, afa og ömmur í Golfklúbbnum Oddi fyrir börn og barnabörn. Námskeiðin sem verða í boði eru eftirfarandi:
Golfleikjanámskeið fyrir 6 – 12 ára
Verð 12.000
Námskeiðin eru 5 daga námskeið og eru mánudaga til föstudaga. Föstudagar eru spiladagar á Ljúflingi og verður alltaf starfsmaður frá golfklúbbnum börnunum til aðstoðar.
Farið er í grunnatriðin í gegnum leiki og þrautir.
Hinn vinsæli SNAG-búnaður og SNAG-kennslufræðin eru notuð á námskeiðinu.
PGA golfkennarar og SNAG-leiðbeinendur klúbbsins kenna á námskeiðinu.
Námskeið 1. 6. – 10. júní. Kl. 9.00 – 12.00
Námskeið 2. 13. – 17. júní. Kl. 9.00 – 12.00
Námskeið 3. 20. – 24. júní. Kl. 9.00 – 12.00
Skráning fer fram með því að fylla út neðangreint form: