• 1. Object
  • 2. Object

10.3° - SV 4.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Golfkennari GO með námskeið hjá Endurmenntun

Magnús Birgisson PGA golfkennari, sem starfað hefur hjá okkur á Urriðavelli um árabil, hefur ásamt fyrirtæki sínu Hissa, ráðgjafar- og fræðslumiðstöð um golf, gert samstarfssamning við Endurmenntun um að halda golfnámskeið. Golfsamband Íslands styður einnig við samstarfið.

Námskeiðið Byrjaðu i golfi – fyrir byrjendur og lengra komna, verður kennt í september og aftur í nóvember. Grunnatriðin í golfi eru kennd með Starting New At Golf (SNAG) golfkennslukerfinu sem hefur slegið í gegn út um allan heim. Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, æfinga og leikja fyrst í húsnæði Endurmenntunar að Dunhaga og síðasta kennsludaginn er kennt í æfingarhúsnæði GSÍ. Kennari er Magnús Birgisson PGA golfkennari og SNAG master leiðbeinandi.

Mikil ánægja og tilhlökkun ríkir um þetta nýja samstarf og stefnt er að því að vera með enn fleiri námskeið af þessum toga í framtíðinni.

< Fleiri fréttir