03/09/2015
Uppselt er í hina glæsilegu haustgolfferð Golfklúbbsins Odds og Heimsferða til Nova Sancti Petri á Spáni 18. – 26. október næstkomandi. Frábær skráning er í ferðina en tæplega 70 félagar úr Golfklúbbnum Oddi ætla að lengja golfsumarið saman á Spáni og njóta alls þess besta sem Spánn hefur upp á að bjóða.
Starfsmenn Heimsferða hafa að undanförnu farið í gegnum lista þeirra einstaklinga sem skráðir voru á biðlista og er nú svo komið að búið er að loka fyrir skráningu í ferðina. Nánari upplýsingar um ferðina veita starfsmenn Heimsferða í síma 595-1000.