• 1. Object
  • 2. Object

10.3° - SV 4.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Breytt tímasetning á fyrsta golfleikjanámskeiði GO

Golfklúbburinn Oddur og MP golf standa fyrir metnaðarfullum golfleikjanámskeiðum fyrir börn á Urriðavelli í sumar. Um er að ræða fimm daga golfleikjanámskeið fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára.

Fyrsta golfleikjanámskeið sumarsins hefst í næstu viku og stendur frá 6. – 10. júní. Námskeiðið hafði áður verið auglýst frá kl. 09:00 – 12:00 en í ljósi þess að grunnskólum landsins er ekki slitið fyrr en um miðja næstu viku hefur námskeiðið verið fært þar til eftir hádegi og verður frá 13:00 – 16:00.

Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Skráning er í fullum gangi hér

< Fleiri fréttir