• 1. Object
  • 2. Object

10.3° - SV 4.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Lokun Urriðavallar og Ljúflings

Þá er komið að því. Í nótt var frost og nú þegar þetta er ritað er enn frost hér upp á velli. Þrátt fyrir þokkalegt veður verður hann ekki leikhæfur í dag. Sólin er lágt á lofti og nær ekki að ylja vellinum, sérstaklega á þeim flötum sem eru nálægt hrauninu.  Veðurspáin er ekki góð fyrir næstu daga annaðhvort næturfrost eða rok og rigning og því hefur verið tekin sú ákvörðun að loka vellinum þetta árið.  Vallarstarfsmenn munu nú fara í að setja upp vetrarspil á brautum 10-18.  Þess má geta að aldrei áður höfum við náð að hafa opið eins lengi fram á haustið og nú og villjum við þakka félögum fyrir frábært sumar.

< Fleiri fréttir