01/02/2018
Verð 206.400,- í tvíbýli
Verð 227.400.- í einbýli
Lumine golfsvæðið hefur yfir að ráða þremur glæsilegum golfvöllum. Lumine Lakes og Lumine Hills eru 18 holu vellir og Lumine Ruins er 9 holu völlur.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKOÐA HEIMASÍÐU LUMINE GOLFSVÆÐISINS
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ YKKUR Í FERÐINA
Innifalið:
*Golfbíll kostar 40€ á hring og 60€ dagurinn. Vinsamlegast takið fram í séróskum í bókun ef þið viljið hafa bíl til umráða. Almennt verð á golfbíl er 44€ fyrir 18 holur.
*Greiða þarf staðfestingargjald 50.000 kr. á einstakling eigi síðar en 10 dögum eftir skráningu inn á reikning 0133-26-212 kt. 611293-2599 og vinsamlegast sendið kvittun á oddur@oddur.is
Um hótelið Palas Pineda****
Þetta glæsilega hótel er staðsett 80 metra frá ströndinni í Pineda og býður upp á 3 útisundlaugar og bar við sundlaugarbakkann, líkamsrækt,
innisundlaug heitan pott og gufubað. Hægt er að panta nudd gegn gjaldi. Rúmgóð herbergin á Palas Pineda eru með flatskjásjónvarpi og loftkælingu. Í næsta nágrenni við hótelið er að finna ýmsa veitingastaði. Strandbærinn Salou er í um 5 km. fjarlægð frá Hótel Palas Pineda þar sem einnig má finna fjölmarga veitingastaði og verslanir ef fólk vill tilbreytingu frá hótel-lífinu eitt og eitt kvöld.
Hótelið er staðsett um 2 km frá golfvellinum og það tekur því um 5 mínútur að aka þangað og um 20 mínútur að ganga. Akstur á golfvellina er innifalinn í verði.