Mótaröðin er vikulega í átta skipti byrjar alltaf klukkan 19:30 á þriðjudögum og hefst 23. janúar
(23/1, 30/1, 6/2, 13/2, 20/2, 27/2, 5/3 og 12/3).
Til að vera með í mótinu þarf að mæta í fjögur skipti en að sjálfsögðu hvetjum við konur til að mæta og pútta þó að þær muni ekki ná fjórum skiptum.
Tilvalið að mæta á svæðið frá 19:30 og við höfum svæðið út af fyrir okkur til c.a. 21:00.
Það er gott pláss í kaffiaðstöðunni á neðri hæðinni svo það ætti að vera hægt að bíða þar ef það er mikil umferð á púttvellinum