- Par 4
- Forgjöf 18
58 330
54 282
49 261
46 233
Enga ævintýramennsku hér, holan er tiltölulega létt ef ekki er reynt of mikið. Blint teighögg og eins gott að taka rétta stefnu og vera viss um hvað maður ætlar að gera. Senda svo kúluna á brautina, inn fyrir 100 metra, jafnvel járnahögg. Miða á miðja flöt, ef lengdin er rétt er ekki langt í pinnann.