- Par 4
- Forgjöf 3
58 375
54 375
49 353
46 353
Skemmtilegasta teighöggsholan á vellinum að margra mati. Miða hægra megin á braut og ef teighöggið heppnast er gaman að horfa á eftir kúlunni. Ef upphafshöggið endar í vandræðum, einfaldar lausnir nauðsynlegar og skollinn er góður. Hæðarmunur er mikill upp á flötina og hún er löng. Hætturnar eru vinstra megin og það er bannsvæði fyrir flesta. Miða hægra megin á flöt og með einni kylfu meira en reikningurinn og sjón segja til. Þetta er flöt sem gott er að þekkja vel og sérstaklega ef pútta þarf niður halla.