25/04/2019
Miðvikudaginn 1. maí klukkan 17:00 ætlum við að halda vorfund GO þar sem farið verður yfir þau mál sem framundan eru í starfi klúbbsins og fundargestum gefið tækifæri til að koma með spurningar og ábendingar um starf GO. Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna og taka virkan þátt í félagsstarfi klúbbins.
Meðal þess sem er á dagskrá fundarins er eftirfarandi.
– Staðan á skipulagsmálum og stækkun vallarins
– Nýir veitingaaðilar
– Opnun vallar
– Vinavellir GO 2019
– Hvað er framundan í félagsstarfi
– Önnur mál
Kveðja,
Stjórn GO