13/05/2019
Það fór lítið fyrir hita og logni á opnunarmóti GO sem haldið var 12.maí en um 130 manns létu það ekki á sig fá og léku golf við þær aðstæður sem í boði voru með bros á vör.
Mótið var einnig forkeppni fyrir holukeppni og þar fóru 32 karlar og 16 konur áfram í fyrstu umferð sem leikin verður á næstu vikum. Nánar verður hægt að lesa sér til um holukeppnina í annari frétt hér á síðunni.
Verðlaun í mótinu eru í formi inneignar í golfbúðinni á Urriðavelli og stofnuð er inneign hjá hverjum vinningshafa. Fyrir 1. sætið er 15.000 kr. inneign, 10.000 fyrir annað sæti, 7500 fyrir 3. sæti og nándar- og lengdarverðlaun eru 5000 kr. inneign.
Úrslit í Opnunarmóti GO 2019
Kvennaflokkur: Besta skor án f.gj.
1.sæti: Björg Þórarinsdóttir 86 högg (38 punktar)
Kvennaflokkur: punktar
1.sæti: Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir 36 punktar
2.sæti: Kristín Erna Guðmundsdóttir 36 punktar
3.sæti: Guðbjörg Elín Ragnarsdóttir 35 punktar
Karlaflokkur: Besta skor án f.gj.
1.sæti: Ragnar Gíslason 77 (38 punktar)
Karlaflokkur: punktar
1.sæti: Guðmundur Helgi Kristjánsson 34 punktar
2.sæti: Hafsteinn E Hafsteinsson 33 punktar
3.sæti: Örn Bjarnason 32 punktar
Næst holu á:
4: Ragnar Gíslason 3.98
8: Jóhann Sigþórsson 1,56
13: Hreinn Ómar Sigtryggsson 3,05
15: Örn Bjarnason 0,44
Lengsta teighögg kvenna á 9. braut: Ágústa Arna Grétarsdóttir
Lengsta teighögg karla á 14. braut: Andreas Peter David Petersson