• 1. Object
  • 2. Object

-3.1° - NA 5.4 m/s

585 0050

Book Tee Times

„ROAD TO Sand Valley“

Stóra Innanfélagsmótið í samstarfi við Sand Valley Golf Resort í Póllandi

Mánudagurinn 10. júní (annar í Hvítasunnu).
Golfklúbburinn Oddur og Sand Valley Golf Resort í Póllandi ætla að bjóða upp á sannkallaða innanfélagsmóts-golfveislu á annan í Hvítasunnu hér á Urriðavelli.

Verðlaun í mótinu eru verða afar glæsileg en keppt verður í þremur flokkum og sigurvegarar í hverjum flokki fara ásamt fulltrúa GO á mót á Sand Valley golfvellinum í Póllandi sem haldið verður 27. ágúst en ferðin stendur yfir í dagana 24. – 29. ágúst, þannig að um er að ræða glæsilega 5 daga golfferð með flugi fyrir vinningshafana. Mótið úti er einnig klúbbakeppni þannig að sigurvegarar mótsins munu leika fyrir hönd GO í þeirri keppni sem ætti að auka á ánægjuna. 

Við keppum í þremur flokkum, höggleik án forgjafar (besta skor), besta punktaskor með forgjöf í flokki 0 – 18,0 og besta punktaskor með forgjöf í flokki 18,1 – 36,0
Allir kylfingar í GO hafa þátttökurétt óháð forgjöf, hámarks leikforgjöf er 36. Keppendur fá teiggjöf  og það verða vissulega fleiri glæsilegir vinningar þannig að keppendur eiga von á skemmtilegum degi. 

Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjá aðilana í hverjum flokki, nándarmælingar, lengstu teighögg og ýmislegt fleira verður á boðstólunum enda ætlum við að eiga frábæran dag. Kylfingar geta einungis unnið í einum flokki.

Skráning er hafin á golf.is 
Rástímar eru frá 8.00 – 16.00 og mögulega lengjum við mótið ef þátttaka fer fram út björtustu vonum. 

Mótsgjald er á innanfélagsnótum 3500 kr.

Keppnisreglur og skilmálar:
Keppt er í þremur flokkum, höggleik án forgjafar (besta skor), punktakeppni í flokki 0 -18,0 og punktakeppni 18,1 – 36,0. Hámarks leikforgjöf í mótinu er 36 en kylfingar með hærri forgjöf er vissulega heimil þátttaka þó að það sé hámarks leikforgjöf. Keppendur geta einungis unnið í einum flokki.

Ef keppendur enda jafnir þá er gripið til skrifstofubráðabana.
Fleiri punktar á seinni 9 síðan 6 síðan 3 og að lokum er talið frá 18 holu og upp. Ef keppendur standa enn jafnir þá er varpað hlutkesti.
Að varpa hlutkesti telst vera: peningi kastað upp eða dregið úr spilum.

Í höggleikskeppni er leikinn bráðabani ef keppendur eru jafnir. 

Nándarmæling er á: 4.  8.  13.  15. 
Næst holu (eða í holu) Ef tveir eða fleiri keppendur fá sömu mælingu er varpað hlutkesti hver hlýtur verðlaun.
Að varpa hlutkesti telst vera peningi kastað upp eða dregið úr spilum. Hola í höggi, telst næst holu. 

Lengsta teighögg: Hérna þarf högg að vera á braut. 

5. hola
11. hola
3. hola
RtSV-poster-A2-PRINT

< Fleiri fréttir