06/01/2023
Jón Otti Sigurðsson-Minningarorð
Jarðsunginn verður í dag einn af frumkvöðlum og brautryðjendum við gerð Urriðavallar og stofnun Golfklúbbsins Odds. Jón Otti Sigurðsson var í fararbroddi manna sem lögðu til að land í eigu Oddfellow hreyfingarinnar yrði nýtt til gerð golfvallar og fyrir aðra útivist í Urriðavatnsdölum. Hann fylgdi hugmyndinni eftir og vann að verkefninu ötullega, m.a. með gerð svonefndar „Hvítbókar“ þar sem jarðfræði- og vistfræðirannsóknum svæðisins voru gerð skil sem og sýn á skipulag og nýtingu. Þessi vinna hefur verið leiðarstefið í allri uppbyggingu svæðisins síðan. Það var því við hæfi að Jón Otti fengi þann heiður að taka fyrsta högg á verðandi Urriðavelli áður en vinnuvélar voru ræstar. Hefur því verið lýst þannig að Jón Otti hafi tekið upp 5 járn og slegið glæsilegt högg að viðstöddu fjölmenni.
Jón Otti var stöðugt vakandi og áhugasamur um framgang klúbbsins og lagði til að mynda hendur á árar í vinnu við stækkun vallarins úr 18 holum í 27 meðan heilsa leyfði. Nú hillir undir að sú sýn og vinna verði að veruleika. Verk hans má líka sjá með öðrum hætti á vellinum. Skógrækt vallarins var honum hugleikin og hann hannaði og lét smíða bekkina sem félagar í Oddi og aðrir kylfingar tilla sér gjarnan á við teiga vallarins. Fyrir 10 árum síðan, á 20 ára afmæli GO, var Jón Otti sæmdur gullmerki félagsins í þakklætis og virðingarskyni fyrir hans mikla framlag til klúbbsins. Við kveðjum nú fallinn félaga sem mótaði leiðina sem við félagar í Oddi höfum notið ríkulega síðastliðin 30 ár. Ástvinum sendum við innilegar samúðarkveðjur.