• 1. Object
  • 2. Object

10.3° - SV 4.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Æfingastarf GO

Barna- og unglingaæfingar GO eru ætlaðar félagsmönnum á aldrinum 9 til 18 ára (yngri iðkendur eru þó vel velkomnir í samráði við þjálfara).  Kennsla er í höndum Golf Akademíu Odds undir stjórn PGA kennaranna Phill Hunter og Rögnvaldar Magnússonar en umsjónaraðilar æfinga er Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Auður Björt Skúladóttir og Íris Lorange Káradóttir PGA nemar. 

 

——————————————————————————————————————–

Æfingahópur 7 – 8 ára -Golfæfingar á golfvallarsvæði Odds. (Einungis æfingar frá 11.júní-13.ágúst)
Þriðjudaga 13:00-13:45

Golfklúbburinn Oddur hefur ákveðið að vera með sumaræfingar fyrir 7-8 ára. Sumaræfingarnar í þessum aldurshópi eru ætlaðar börnum sem hafa lokið/eru skráð á að minnsta kosti eitt golfleikjanámskeið Odds þetta sumarið. Hámarksfjöldi í þennan hóp er 20 iðkendur.

——————————————————————————————————————–

Æfingahópur 9 – 11 ára. -Golfæfingar á golfvallarsvæði Odds.

****Þeir sem eru fullgildir félagsaðilar hjá Golfklúbbnum Oddi geta skráð sig á æfingar****

Hópur 1 -Golfæfingar á golfvallarsvæði GO
Þriðjudaga 13:50-14:45
Miðvikudaga -Spilaæfing/Mót
Fimmtudaga 14:50-15:45
Hópur 2 – Golfæfingar á golfvallarsvæði GO
Þriðjudaga 14:50-15:45
Miðvikudaga -Spilaæfing/Mót
Fimmtudaga 14:00-14:55

Á miðvikudögum eru sameiginlegar Spilaæfingar/Mót á Ljúfling. Við verðum með spilaæfingar þá miðvikudaga sem ekkert mót er í mótaröðum klúbbsins. Mótaraðir klúbbsins (Urriðamótaröðin/Ljúflingsmótaröðin) eru ætlaðar öllum félagsmönnum undir 18 ára aldri. Dagskrá mótaraðanna er hægt að sjá undir Urriðamótaröðin/Ljúflingsmótaröðin 2024.

——————————————————————————————————————–

Æfingahópur 12 – 18 ára -Golfæfingar á golfvallasvæði Odds

****Þeir sem eru fullgildir félagsaðilar hjá Golfklúbbnum Oddi geta skráð sig á æfingar****


Þriðjudaga 16:00-17:15
Miðvikudaga -Spilaæfing/Mót
Fimmtudaga 15:00-16:15

Á miðvikudögum eru Spilaæfingar/Mót á Ljúfling. Við verðum með spilaæfingar þá miðvikudaga sem ekkert mót er í mótaröðum klúbbsins. Mótaraðir klúbbsins (Urriðamótaröðin/Ljúflingsmótaröðin) eru ætlaðar öllum félagsmönnum undir 18 ára aldri. Dagskrá mótaraðanna er hægt að sjá undir Urriðamótaröðin/Ljúflingsmótaröðin 2024.

——————————————————————————————————————–

Hægt er að vera í sambandi við skrifstofu golfklúbbsins á netfangið hrafnhildur@oddur.is til að fá frekari upplýsingar um stöðu mála á æfingum.

Æfingarnar fara fram á æfingasvæði Golfklúbbsins Odds ásamt æfingavelli GO (Ljúflingur)

•Hægt er að er ráðstafa frístundarstyrk sveitarfélaga upp í æfingagjöld hjá klúbbnum.

•Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband við Hrafnhildi Íþróttastjóra (hrafnhildur@oddur.is)

————————————————————————————————————–

Hægt er að skrá sig í barna- og unglingastarf Odds hér

www.xpsclubs.is

Golfleikjanámskeið GO – 2024

***Skráning hafin***

Dagsetningar fyrir námskeiðin í sumar eru eftirfarandi:

  1. námskeið: 10. – 14. júní (5 dagar) -fullt er á námskeiðið
  2. námskeið: 18. – 21. júní (4 dagar)
  3. námskeið: 1. júlí. – 5. júlí (5 dagar)
  4. námskeið: 6. – 9. ágúst (4 dagar) 
  5. námskeið: 12. – 16. ágúst (5 dagar)

Athugið að námskeiðstími er frá 9:00 – 12:00.
Námskeiðin eru ætluð börnum frá 6 – 12 ára (fædd 2011 – 2017).

Verð fyrir 5 daga námskeið er 17.000 kr.
Verð fyrir 4 daga námskeið er 13.600 kr.

Skráning fer fram í gegnum Sideline Sports (XPS) – SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ 

Athugið að til að skrá barn á golfleikjanámskeið er hægt að ganga frá skráningu í gegnum hlekkinn hér fyrir ofan. Velja þarf Golfklúbbinn Odd, þar er svo óskað eftir skráningu inn í kerfið með rafrænum skilríkjum. Í kjölfarið opnast valmynd þar sem viðkomandi forráðamaður getur valið sitt barn sem iðkanda og þá birtist það úrval golfleikjanámskeiða sem er í boði. Kerfið ætti svo að leiða ykkur áfram í greiðslu á námskeiðsgjaldi.

ATHUGIÐ- aðeins forráðamenn geta skráð barn beint í gegnum kerfið en hægt er að hafa samband við Hrafnhildi á netfangið hrafnhildur@oddur.is eða skrifstofa@oddur.is og við skráum þann aðila sem greiða skal námskeiðið sem forráðamann í kerfinu svo hægt sé að klára skráningu.

Einnig er hægt að ná sér í app sem kallast “XPS Network”, þegar það er klárt er hægt að bóka á námskeið með því skrá inn með rafrænum skilríkjum. Ef ykkur vantar aðstoð við skráningu þá endilega hafið samband við skrifstofu GO.

Öll börn sem skráð eru á námskeið hjá Oddi fá félagsaðild að Golfklúbbnum Oddi svokallaða ljúflingsaðild og geta haldið áfram að spila allt sumarið á okkar frábæra æfingavelli Ljúflingi.

Hjá GO verður í boði að skrá börn á sumaræfingar í kjölfar golfnámskeiða og eru þær æfingar hugsaðar fyrir aldurshópana 7 ára (2017)-8 ára (2016) og einnig 9 ára (2015) – 11 ára (2012). Í boði er að skrá börn í aðild og æfingar strax frá opnun golfvallar og ættu þeir valmöguleikar að birtast þegar þið skráið ykkur inn í XPS íþrótta og greiðslukerfið.

Kennarar og leiðbeinendur:

Golfkennsla á námskeiðinum er í höndum PGA barna- og byrjendakennaranna Hrafnhildar Guðjónsdóttur, Auðar Bjartar Skúladóttur og Írisar Lorange Káradóttur. Ásamt þeim starfa aðrir leiðbeinendur úr íþrótta og unglingastarfi GO.

Markmið golfleikjanámskeiðanna hjá GO

Að kynna golfíþróttina fyrir börnunum og ýta undir áhuga þeirra á því að leggja stund á þessa fjölskylduvænu íþrótt. Farið er í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga og eru leiðbeiningar gjarnan í formi ýmiss konar golfleikja. Einnig verður lögð áhersla á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir nemendum. Mikilvægt er að á golfnámskeiðinu séu einnig fjölbreyttir leikir sem efla hreyfiþroska barnanna svo sem samhæfingu, liðleika og jafnvægi, enda eru það mikilvægir þættir í hreyfingum golfsveiflunnar. Forgangsatriði námskeiðanna eru að þau séu örugg, skemmtileg, og að börnin njóti sín og þrói jákvætt viðhorf til golfíþróttarinnar.

Svona skráir þú þig…

Skráning fer fram í gegnum Sideline Sports (XPS) – SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ 

Smellið á Golfklúbbinn Odd og þaðan farið þið í valmynd til að skrá ykkur inn með rafrænum skilríkjum.

Smellið á réttan iðkenda með því að smella á skammstöfun viðkomandi og þá ættu valmöguleikar viðkomandi að opnast.