28/07/2023
Í gegnum síðustu ár höfum við haldið á lofti verkefninu Braut í fóstri þar sem sérhver félagsmaður fær eina braut í fóstur yfir sumarið. Það sem þetta verkefni snýst um er að félagsmaður mun þá þegar hann leikur völlinn sérstaklega taka til hendinni á sinni braut, tína upp rusl, henda brotnum tíum í þar til gerða standa, raka sandgryfju eða laga hrífu ef við á og almennt hugsa um sína braut.
Við vonum að þeir sem ekki þekkja þetta verkefni finni sína braut með því að skoða skiptinguna hér fyrir neðan þar sem við höfum skipt félagsmönnum upp í 18 hópa og farið var þar eftir stafrófsröð.
Hér sést upphafsnafn og lokanafn á hverri braut og ef þitt nafn á heima þar á milli þá er það brautin þín.
Braut 1 : Aðalbjörg- Árni
Braut 2: Ása- Bjarki
Braut 3: Bjarni- Davíð
Braut 4: Diðrik – Erna
Braut 5: Ester- Guðjón
Braut 6: Guðlaug – Guðrún
Braut 7: Gunnar – Haraldur
Braut 8: Haukur – Hrafn
Braut 9: Hrafnhildur – Jóhann
Braut 10: Jóhanna – Jökull
Braut 11: Karl – Lárus
Braut 12: Lilja – Níels
Braut 13: Oddný – Phill
Braut 14: Rafn – Sigríður
Braut 15: Sigrún – Skúli
Braut 16: Smári – Sveinn
Braut 17: Sverrir Vilborg
Braut 18: Vilhjálmur – Össur