• 1. Object
  • 2. Object

-5.5° - ANA 5.2 m/s

585 0050

Book Tee Times

Vetrar/voræfingar 2024 – 2025

Barna- og unglingaæfingar GO eru ætlaðar félagsmönnum á aldrinum 9 til 18 ára (yngri iðkendur eru þó velkomnir í samráði við þjálfara). 

Kennsla er í höndum Golf Akademíu Odds undir stjórn PGA kennaranna Phill Hunter og Rögnvaldar Magnússonar en umsjónaraðilar æfinga er Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Auður Björt Skúladóttir og Íris Lorange Káradóttir PGA nemar. 

Hægt er að vera í sambandi við skrifstofu golfklúbbsins á netfangið audur@oddur.is til að fá frekari upplýsingar um stöðu mála á æfingum.

Æfingarnar fara fram í Kórnum Kópavogi og Golfsvítunni Hafnarfirði, ásamt æfingu einu sinni í viku í Sjálandsskóla út apríl.

Á mánudögum eru sameiginlegar æfingar í Sjálandsskóla kl. 17-18. Farið verður yfir jafnvægisæfingar, samhæfingaræfingar ásamt styrktaræfingum með líkamsþyngd.
Á Þriðjudögum á Fimmtudögum eru æfingar í Kórnum Kópavogi.
Á Miðvikudögum eru æfingar í Golfsvítunni Hafnarfirði.
Tvo Föstudaga í mánuði er spilaæfing í Kórnum Kópavogi.