***Skráning hafin***
Dagsetningar fyrir námskeiðin í sumar eru eftirfarandi:
Athugið að námskeiðstími er frá 9:00 – 12:00.
Námskeiðin eru ætluð börnum frá 6 – 12 ára (fædd 2011 – 2017).
Verð fyrir 5 daga námskeið er 17.000 kr.
Verð fyrir 4 daga námskeið er 13.600 kr.
Skráning fer fram í gegnum Sideline Sports (XPS) – SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ
Athugið að til að skrá barn á golfleikjanámskeið er hægt að ganga frá skráningu í gegnum hlekkinn hér fyrir ofan. Velja þarf Golfklúbbinn Odd, þar er svo óskað eftir skráningu inn í kerfið með rafrænum skilríkjum. Í kjölfarið opnast valmynd þar sem viðkomandi forráðamaður getur valið sitt barn sem iðkanda og þá birtist það úrval golfleikjanámskeiða sem er í boði. Kerfið ætti svo að leiða ykkur áfram í greiðslu á námskeiðsgjaldi.
ATHUGIÐ- aðeins forráðamenn geta skráð barn beint í gegnum kerfið en hægt er að hafa samband við Hrafnhildi á netfangið hrafnhildur@oddur.is eða skrifstofa@oddur.is og við skráum þann aðila sem greiða skal námskeiðið sem forráðamann í kerfinu svo hægt sé að klára skráningu.
Einnig er hægt að ná sér í app sem kallast “XPS Network”, þegar það er klárt er hægt að bóka á námskeið með því skrá inn með rafrænum skilríkjum. Ef ykkur vantar aðstoð við skráningu þá endilega hafið samband við skrifstofu GO.
Öll börn sem skráð eru á námskeið hjá Oddi fá félagsaðild að Golfklúbbnum Oddi svokallaða ljúflingsaðild og geta haldið áfram að spila allt sumarið á okkar frábæra æfingavelli Ljúflingi.
Hjá GO verður í boði að skrá börn á sumaræfingar í kjölfar golfnámskeiða og eru þær æfingar hugsaðar fyrir aldurshópana 7 ára (2017)-8 ára (2016) og einnig 9 ára (2015) – 11 ára (2012). Í boði er að skrá börn í aðild og æfingar strax frá opnun golfvallar og ættu þeir valmöguleikar að birtast þegar þið skráið ykkur inn í XPS íþrótta og greiðslukerfið.
Hægt er að lesa meira um æfingarnar hér: https://www.oddur.is/aefingastarf/sumaraefingar-
Golfkennsla á námskeiðinum er í höndum PGA barna- og byrjendakennaranna Hrafnhildar Guðjónsdóttur, Auðar Bjartar Skúladóttur og Írisar Lorange Káradóttur. Ásamt þeim starfa
Skráning fer fram í gegnum Sideline Sports (XPS) – SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ
Smellið á Golfklúbbinn Odd og þaðan farið þið í valmynd til að skrá ykkur inn með rafrænum skilríkjum.
Smellið á réttan iðkenda með því að smella á skammstöfun viðkomandi og þá ættu valmöguleikar viðkomandi að opnast.