06/03/2019
Farsælu sambandi milli Par 3 ehf og Golfklúbbsins Odds er nú lokið og munu því Nikulás og Pálína ekki þjóna félagsmönnum á komandi sumri. Hafa þau heiðurshjón áveðið að snúa sér að öðrum verkefnum eftir að hafa matreitt og borið drykki ofan í okkur síðastliðin 8 ár. Óskum við félagar í Golfklúbbnum Oddi þeim og þeirra starfsfólki alls hins besta.
Hefst nú leit okkar að nýju veitingafólki. Munum við halda félagsmönnum upplýstum þegar eitthvað gerist í þeim efnum.