25/04/2016
Í tilefni þess að það styttist í golfsumarið hér á Urriðavelli þá er fatnaður og skór í golfverslun hér á Urriðavelli á sérstöku vortilboði. 25% afsláttur verður á öllum fatnaði sem er til sölu í golfverslun klúbbsins núna næstu vikur.
Um er að ræða fatnað frá FootJoy sem er merktur klúbbnum og einnig Ecco golfskór. Það er tilvalið að hefja golfsumarið á að uppfæra golffatnaðinn og halda inn í nýtt sumar með bros, hanska og golftakkaskó.
Fatnaðinn frá FootJoy má sjá hér að neðan og er hann allur merktur Golfklúbbnum Oddi.