16/05/2018
Tölvunefnd GSÍ hefur virkjað breytingar á golf.is er varða forgjafaskráningu og fleirri atriði sem listuð eru hér fyrir neðan. Í grunninn virkar nýja kerfið þannig að við skráningu á rástíma verður hringurinn sjálfkrafa skráður sem forgjafahringur og birtist á forgjafaeftirliti kylfings. Til að fyrirbyggja misskilning þá er ekki skilda að skrá forgjafahring þótt kerfið sé að vinna svona. Kylfingur getur sjálfur eytt út tilkynntum hringjum á forgjafayfirliti sínu, kylfingur getur einnig vistað kortið sem æfingahring en þá velur kylfingur engan ritara áður en vistað er og ef tilkynntur hringur er eldri en 3 daga gamall er ekki lengur hægt að skrá hann inn sem forgjafahring einungis sem æfingahring.
Önnur mikilvæg breyting á kerfinu lýtur að því að við skráningu getur kylfingur sagt hvort hann ætli að spila 9 eða 18 holur sem frábær breyting sem nýtist vel við stjórnun á vellinum okkar og skapar vonandi svigrúm til að nýta betur völlinn. Við viljum því hvetja þá kylfinga sem ætla einungis að spila 9 holur um að vera duglegir að merkja það þannig.
Tilkynna hring í stuttu máli:
Í maí mun tölvunefnd GSÍ innleiða nýja viðmótstækni „React“ fyrir hinn almenna félagsmann til að ná þeim markmiðum að Golf.is hafi nútímalegt viðmót, verði notendavænn og hraðvirkur.
Þetta þýðir að í smíðum er snjallvefur sem mismunar ekki skjástærð, og að hann virkar á öll viðtæki s.s. farsíma, tölvur og spjaldtölvur. Með snjallvef er verið að veita kylfingum þá þjónustu sem þeir sækjast eftir og þá upplifun sem þeir eiga skilið, óháð tæki.
Samkvæmt vefgreiningu fyrir árið 2017 þá er helmingur kylfinga að nota vefinn í gegnum farsíma eða spjaldtölvur. Áætlað er að 1. útgáfa líti dagsins ljós í maí eins og ofar segir. Í fyrstu verða mínar síður og rástímaskráning aðgengileg í þessari nýju tækni. 2. útgáfa kemur síðan í september/október þar sem mótaskrá, mótaraðir, klúbbasíður og um GSÍ verður komið í nýtt útlit.
Frá og með árinu 2020 verður eitt forgjafarkerfi notað á heimsvísu og verður það í fyrsta sinn sem eitt kerfi verður notað til að reikna út forgjöf kylfinga. Æðstu samtök golfíþróttarinnar á heimsvísu, USGA í Bandaríkjunum og R&A í Skotlandi hafa unnið að þessu verkefni í samvinnu við fjölmarga aðila og samtök á undanförnum árum.
Forgjafarkerfi fyrir kylfinga hafa verið ólík víðsvegar um veröldina og mismunandi áherslur einkenna hvert forgjafarkerfi.
Forgjafarkerfið hefur nú þegar verið prófað af 52.000 kylfingum í 15 löndum. Niðurstaðan er að 76% þeirra voru ánægðir með breytingarnar, 22% höfðu ekki skoðun á breytingunni og aðeins 2% voru óánægðir.
Nánar verður greint frá forgjafarkerfinu á golf.is á næstunni og í 1 tbl. Golf á Íslandi 2018.