04/01/2022
Við höfum opnað fyrir val á greiðslufyrirkomulagi félagsmanna vegna félagsgjalda 2022 í gegnum félagavefinn oddur.felog.is. Félagsmenn geta sjálfir fram til 17. janúar næstkomandi skipt greiðslum á greiðslukort eða greiðsluseðla og möguleiki er að dreifa greiðslum þar í allt að 5 skipti. Nýti félagsmaður sér það ekki fyrir 17. janúar næstkomandi verða félagsgjöld send út sem tvær kröfur í banka með gjalddaga 1. febrúar og 1. mars.
Vakni einhverjar spurningar er velkomið að hafa samband við skrifstofu klúbbsins alla virka daga frá kl. 09:00-16:00 í síma 5850050 eða með því að senda póst á skrifstofa@oddur.is.
Golfklúbburinn Oddur