24/07/2019
Golfklúbburinn Oddur og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar standa saman að Íslandsmóti golfklúbba helgina 26.7 – 28.7 þar sem bestu kylfingar landsins mæta fyrir hönd síns klúbbs og etja kappi við bæði frábæra andstæðinga og glæsilega golfvelli.
Mótsfyrirkomulagið er þannig í ár að keppt er í karla – og kvennaflokki á sömu keppnisvöllunum og er þetta í fyrsta sinn sem slíkt fyrirkomulag er á Íslandsmóti golfklúbba sem leikið er undir formerkjum Origo.
Golfklúbburinn Oddur á glæsilega fulltrúa í 1. deild kvenna og við hvetjum okkar félagsmenn til þess að fjölmenna sem áhorfendur á mótið og styðja okkar konur og að sjálfsögðu til að líta aðra keppendur augum líka.
Keppni hefst á föstudaginn, 26. júlí.
1. deild karla: Urriðavöllur (GO).
1. deild kvenna: Leirdalsvöllur (GKG)
Laugardagur 27. júlí:
1. deild karla: Leirdalsvöllur
1. deild kvenna: Urriðavöllur
Sunnudagur 28. júlí:
Leikið um sæti 1.-4. í báðum flokkum: Leirdalsvöllur
Leikið um sæti 5.-8. í báðum flokkum: Urriðavöllur