Boðað er í æfingahópa í karla og kvennaflokkum 50 + hjá eldri kylfingum á hverju hausti eða í upphafi árs þar sem við reynum að koma þeim hópum fyrir á æfingaáætlun yfir vetrartímann og æfingar halda svo áfram yfir sumarið. Skilyrði fyrir því að æfa á vegum félagsins er að kylfingarnir gefi kost á sér í keppnislið GO ef þeir eru valdir.
Þar sem okkur er þröngur stakkur búinn í æfingum yfir vetrartímann þá reynum við að miða val í æfingahópa við að fyrst er valið úr þeim hópi sem skipaði liðið á keppnistímabilinu á undan og aldur og forgjöf ræður einnig vali sérstaklega þegar nýjum aðilum er bætt í hópinn.
Allir eldri kylfingar 50+ sem skráðir eru í GO geta spilað sig inn í keppnissveitir Odds. Á hverju sumri geta kylfingar tekið þátt í þeim mótum sem tekin eru til viðmiðunar við val í keppnissveitina. Undanfarin ár hefur verið tekið mið af stigalista LEK og Meistaramóti GO.
Til upplýsinga þá eru hér þær reglur um val í keppnissveit sem hafðar eru til viðmiðunar ef með þarf eftirfarandi:
Reglur við val í keppnissveitir eldri kylfinga kvenna og karla:
9 kylfinga sveit:
Efstu TVEIR leikmenn á stigalista LEK eftir íslandsmót skipa fyrstu tvö sætin. *
Efstu þrír leikmenn á Meistaramót GO 50 + flokki eða forgjafaflokki leikmanns (besta skor högg- meðaltal) skipa næstu þrjú sæti.
Síðustu fjögur sætin í sveitina eru valin af afreksnefnd og þjálfurum.
Verði sömu leikmenn í efstu sætum í þeim mótum sem velja skal úr, mun afreksnefnd og þjálfarar velja þá leikmenn sem skipa skulu sveit til að fylla upp í keppnissveit.
*leikmenn þurfa að vera á topp 10 á stigalista
6 kylfinga sveit:
Efsti leikmaður á stigalista LEK eftir íslandsmót skipar fyrsta sætið. *
Efstu þrír leikmenn á Meistaramót GO 50 + flokki eða forgjafaflokki leikmanns (besta skor, högg- meðaltal) skipa næstu þrjú sæti.
Síðustu tvö sætin í sveitina eru valin af afreksnefnd og þjálfurum.
Verði sömu leikmenn í efstu sætum í þeim mótum sem velja skal úr, mun afreksnefnd og þjálfarar velja þá leikmenn sem skipa skulu sveit til að fylla upp í keppnissveit.
*leikmenn þurfa að vera á topp 10 á stigalista
Afreksnefnd vill hvetja þá kylfinga sem telja sig eiga erindi í keppnissveitir til að taka þátt í þeim mótum sem gilda til vals í keppnissveitir. Þeim kylfingum sem telja sig eiga heima í æfingahóp er velkomið að vera í sambandi við íþróttastjóra GO hrafnhildur@oddur.is og málið verður skoðað með viðkomandi leikmanni.
Ekki er skipulagt æfingastarf yfir vetrartímann fyrir keppnissveitir á LEK móti golfklúbba 65 + en við gerum okkar besta til að aðstoða þá aðila sem vilja æfa þar með aðgengi að æfingum ef aðstæður leyfa.
Kv. Afreksnefnd GO