28/07/2021
4. umferð í liðakeppni GO var leikin á mánudaginn og fyrirkomulagið var greensome og því reyndi á leikmenn liða að stilla saman strengi. Liðið Lion Trees átti frábæran dag og kom í hús með 44 punkta, í öðru sæti var liðið 2 möllar og í þriðja sæti rúllaði lið frá Prinsunum.
Staðan er jöfn og spennandi og sigurvegarar síðasta árs Fyrirsæturnar tróna á toppnum eins og staðan er núna og nú veltur það á öðrum liðum að reyna að ná þeim af stallinum í síðustu tveimur mótunum. Næsta mót er 23. ágúst og leikfyrirkomulagið punktakeppni.