24/06/2015
Meistaramót GO 2015 fer fram 5.-11. júlí næstkomandi. Keppnisrétt hafa allir félagar í Golfklúbbnum Oddi og er skráning hafin á golf.is. Leikið verður í fjölda flokka og því ættu allir kylfingar að geta tekið þátt en meistaramótsvikan er hjá mörgum hápunktur golfsumarsins. Skráning er hafin á golf.is eða í afgreiðslunni á Urriðavelli. Leikið verður í eftirfarandi flokkum:
Kvennaflokkar:
– M.fl. kvenna grunnforgjöf 0 til 10,0 – teigur 49 – 72 holu höggleikur
– Kvennaflokkur 1 grunnforgjöf 10,1 til 18,0 – teigur 46 – 72 holu höggleikur
– Kvennaflokkur 2 grunnforgjöf 18,1 til 25,0 – teigur 46 – 72 holu höggleikur
– Kvennaflokkur 3 grunnforgjöf 25,1 til 30,0 – teigur 46 – 54 holu punktakeppni
– Kvennaflokkur 4 grunnforgjöf 30,1 til 35,0 – teigur 46 – 54 holu punktakeppni
– Kvennaflokkur 5 grunnforgjöf 35,1 til 40,0 – teigur 46 – 54 holu punktakeppni
Karlaflokkar:
– M.fl. karla grunnforgjöf 0 til 5,0 – teigur 58 – 72 holu höggleikur
– Karlaflokkur 1 grunnforgjöf 5,1 til 10,0 – teigur 54 – 72 holu höggleikur
– Karlaflokkur 2 grunnforgjöf 10,1 til 15.0 – teigur 54 – 72 holu höggleikur
– Karlaflokkur 3 grunnforgjöf 15,1 til 20,0 – teigur 54 – 72 holu höggleikur
– Karlaflokkur 4 grunnforgjöf 20,1 til 25.0 – teigur 49 – 72 holu höggleikur
– Karlaflokkur 5 grunnforgjöf 25,1 til 30,0 – teigur 49 – 54 holu punktakeppni
– Karlaflokkur 6 grunnforgjöf 30,1 til 36,0 – teigur 46 – 54 holu punktakeppni
Flokkar eldri kylfinga:
– Eldri kylfingar kvenna 50 ára til 64 ára, grunnforgjöf 0 – 20,0 – teigur 46 – 54 holu höggleikur
– Eldri kylfingar kvenna 50 ára til 64 ára, grunnforgjöf 20,1 – 40,0 – teigur 46 – 54 holu – punktakeppni
– Eldri kylfingar kvenna 65 ára og eldri, grunnforgjöf 0 – 20,0 – teigur 46 – 54 holu höggleikur
– Eldri kylfingar kvenna 65 ára og eldri, grunnforgjöf 20,1 – 40,0 – teigur 46 – 54 holu
punktakeppni
– Eldri kylfingar karla 55 ára til 69 ára, grunnforgjöf 0 – 20,0 – teigur 54 – 54 holu höggleikur
– Eldri kylfingar karla 55 ára til 69 ára, grunnforgjöf 20,1 – 36,0 – teigur 49 – 54 holu
punktakeppni
– Eldri kylfingar karla 70 ára og eldri, grunnforgjöf 0 – 20,0 – teigur 46 – 54 holu höggleikur
– Eldri kylfingar karla 70 ára og eldri, grunnforgjöf 20,1 – 36,0 – teigur 46 – 54 holu punktakeppni
Börn og unglingar:
– Unglingaflokkur 16 -18 ára ka/kv – teigar 54/46 – 54 holu höggleikur í flokkaskiptingu 0 – 20,0
og 54 holu punktakeppni í flokkaskiptingu 20,1 -36,0/40,0
– Unglingaflokkur 14 – 15 ára ka/kv – teigar 49/46 – 54 holu höggleikur í flokkaskiptingu 0 – 20,0
og 54 holu punktakeppni í flokkaskiptingu 20,1 -36,0/40,0
– Unglingaflokkur 11 – 13 ára ka/kv – teigar 46 – 36 holu höggleikur í flokkaskiptingu 0 – 20,0 og
54 holu punktakeppni í flokkaskiptingu 20,1 -36,0/40,0
– Barnaflokkur 10 ára og yngri Stúlkur/Strákar- ljúflingur- 27 holu höggleikur
Sé þátttaka í einstaka flokkum ekki nægilega mikil þá hefur mótstjórn rétt til þess að sameina flokka eða breyta forgjafarmörkum milli flokka.
Skráning er hafin á golf.is. Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig og taka þátt í þessu frábæra móti.
Tímaáætlun flokka í Meistaramót GO 2015:
Skjöl: