20/11/2018
Það fór fram glæsileg vínkynning á vegum GLOBUS hf hér í golfskála Urriðavallar síðastliðið föstudagskvöld 16. nóvember. Kári Ellertsson frá GLOBUS bauð hópinn velkominn og byrjað var á léttri kynningu á hvítvínum og freyðivínum áður en hópurinn fékk sér sæti við borð þar sem kynnt voru 6 rauðvín og að lokum boðið upp á eftirréttavín, koníak og kökur. Í heild alveg stórkostlegt kvöld og við stefnum að því að sníða saman vínkynningu og sælkerakvöld sem sameinar mat og vín í smökkun og það finnst okkur spennandi kostur og vonandi vekur það áhuga okkar fólks og úr verður flott kvöldstund. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá kvöldinu