19/08/2019
Það varð á endanum hlutskipti okkar kvenna að falla í 2. deild eftir hörkukeppni í Öndverðarnesi um liðna helgi. Mótið var leikið við nokkuð erfiðar aðstæður en nokkuð blés á keppendur en auðvitað sitja allir keppendur við sama borð og þegar upp var staðið vantaði okkar stúlkum einn sigur á borð til að koma sér ofar í töflunni þegar allt var talið.
Það verður því hlutskipti okkar kvenna að leika í 2. deild á næsta ári en við erum fullviss um að það stopp verði stutt og þær komnar í 1. deild áður en langt um líður.