• 1. Object
  • 2. Object

10.3° - SV 4.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Ryderferð GO á Belfry

Golfklúbburinn Oddur mun standa fyrir glæsilegri golfferð í haust til Belfry á Englandi í samstarfi við GB ferðir 6. – 10 október næstkomandi. Eins og margir vita þá er Brabazon völlurinn á Belfry einn frægasti Ryder Cup völlur sögunnar og verður hann spilaður tvisvar í ferðinni. Ferðalagið er mjög þægilegt: Flogið verður í beinu flugi til Birmingham með Icelandair og er golfvallarsvæðið í einungis 15 mínútna fjarlægð frá flugvellinum.

Lagt verður af stað frá Keflavík í beinu flugi til Birmingham 6. október, einungis fjórum dögum eftir Ryder mótið í ár sem haldið verður á Hazeltine National vellinum í Bandaríkjunum. Þetta mun eflaust gera ferðina enn eftirminnilegri. Á svæðinu eru þrír átján holur golfvellir. Auk Brabazon eru það PGA völlurinn og Derby völlurinn. Í ferðinni er boðið uppá ótakmarkað golf fyrir þá sem vilja, ásamt einu golfmóti. Farastjórn er í höndum Golfklúbbsins Odds.

Þeir sem bóka sig fyrir 15. júní greiða aðeins kr. 149.000,- á mann í tvíbýli. (Almennt verð er 160.000,- á mann í tvíbýli). Aukagjald fyrir einbýli er kr. 44.000

Einungis verða 32 sæti laus í ferðina. Því er mikilvægt að hafa hraðar hendur og bóka strax.

Rástímar:
6. okt: PGA National 13.30-14.50
7. okt: Brabazon 08:00 – 09.20
7. okt: Derby 14.04-15.08
8. okt: PGA National 9.10 – 10.30
8. okt: Derby 14.04- 15.08
9. okt: Brabazon 8 – 9.10
9. okt: Derby 14.04- 15.08
10. okt: Derby 09.08-10.12 (hér er óraunhæft að spila meira en 9 holur)

Haldið verður skemmtilegt mót í ferðinni á vegum GO og verður það ásamt fararstjórn kynnt nánar síðar.

Nánari upplýsingar og skráning er að finna á vefsíðu GB ferða:
http://www.gbferdir.is/golfferdir/england/ryderferd-go-belfry

rs407_rs5634_tb_hotel_10thmanor-scr

< Fleiri fréttir