02/03/2021
Dómaranefnd GSÍ stendur fyrir héraðsdómaranámskeiði í mars mánuði eins og hefur verið gert síðustu ár.
Fyrirlestrar verða 9., 11.,15. og 17. mars 2021, kl. 19:00 – 22:00.
Námskeiðið er frítt fyrir meðlimi í golfklúbbum innan GSÍ. Þetta er upplagt tækifæri fyrir félagsmenn til að öðlast meiri þekkingu á golfreglunum.
Þátttöku í héraðsdómaranámskeiði er hægt að tilkynna með því að senda tölvupóst á domaranefnd@golf.is