03/09/2019
ÞAÐ ER VISSULEGA FARIÐ AÐ HAUSTA AÐEINS OG DAGINN FARIÐ AÐ STYTTA OG BÚAST MÁ VIÐ TÍMABUNDNUM LOKUNUM EFTIR AÐSTÆÐUM, SÉRSTAKLEGA Á MORGNANA.
Við miðum við það þessa dagana að opið sé til 20:00 á kvöldin og veitingasalan mun þá loka um það leiti einnig.
Nú er sá árstími genginn í garð að hætt er við næturfrosti og því erum við að snúa vellinum og hefja ræsingu á 10. teig með þeim undantekningumKaldar haustnætur með heiðskírum himni er ávísun á frost niður við jörðu í morgunsárið og til þess að vernda svæðið fyrir skemmdum munum við beita morgunlokunum eins og við teljum best fyrir svæðið. Svæðið allt er viðkvæmt í frosti og getur það orðið fyrir skemmdum ef gengið er á því, sérstaklega á púttflötunum.
Upplýsingamyndband um skemmdir vegna næturfrosts má sjá í þessu myndbandi:
Með þökk fyrir tillitsemina,