• 1. Object
  • 2. Object

10.3° - SV 4.8 m/s

585 0050

Book Tee Times

Texas Scramble mót Oddskvenna – 30. júlí

Nú styttist í ferð kvennanefndar á Íslandsmótsvöllinn hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Golf og fjör í Leiru (Hólmsvöllur).

Búið er að opna skráningu í golfbox!  Sjá upplýsingar um Texas Scramble mót 30. JÚLÍ, á Suðurnesjum.  Þær konur sem þegar voru skráðar í vorferðina á Suðurnesin, halda sinni skráningu.  Það er enn laust í ferðina. Tæplega 70 konur eru nú þegar skráðar.

Skráning fer fram á golf.is og hægt að smella hér
Mótaskrá – Opin mót – Golfklúbbur Suðurnesja- Lokað mót- Kvennag. Golfkl. Odds

Mæting er kl. 10:00 þann 30. júlí við Sporthúsið í Kópavogi 

Brottför er í síðasta lagi kl. 10.30

Ræst út samtímis af öllum teigum kl. 12.00

Ræst út frá skála og haldið á teig u.þ.b. 15 mínútum fyrr

Spilað verður 4ra manna Texas scramble og við hvetjum ALLAR til að vera með vanar og óvanar.

Veitt verða verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sæti í liðakeppni. Nándarmælingar á par 3 brautum, (einstaklingsverðlaun).

Verð er kr. 14.000-

Innifalið er rúta fram og til baka, vallargjald ásamt kvöldverði að móti loknu. Verðlaunaafhending verður eftir mót og dregið úr skorkortum.

Vinsamlegast millifærið sem fyrst, ef þið eigið eftir að borga.

Skráning er opin og lokar 25. júlí kl. 13.00

ATHUGIÐ: Skráning á golfbox stýrir ekki röðun í holl.

Ef hætt er við þátttöku þarf að skrá sig úr mótinu á Golfbox

Ef einhverjir vilja EKKI far með rútunni, þá vinsamlegast látið okkur vita á oddskonur@gmail.com svo ekki verði beðið að óþörfu
– athugið sama verð er fyrir alla

< Fleiri fréttir