09/10/2020
Golfklúbburinn Oddur hefur tekið þá ákvörðun til að fara eftir tilmælum ÍSÍ og GSÍ um að loka golfvöllum á höfuðborgarsvæðinu. Á fundi golfklúbba í morgun var tekin sú ákvörðun eftir samtal við sóttvarnarlækni og yfirvöld að virða þá ósk sem fram hefur komið nýlega um að loka golfvöllum á höfuðborgarsvæðinu. Það var vissulega ekki ósk okkar að enda tímabilið svona í ár en við verðum öll að standa saman og virða óskir og reglur yfirvalda.