31/10/2020
Skv. ákvörðun sóttvarnaryfirvalda hefur okkur og öðrum íþróttafélögum verið gert að hætta starfssemi tímabundið og því þurfum við að loka golfvellinum og æfingasvæðinu og þar höfum við því skellt í lás og gildir sú lokun til 17. nóvember. Við bregðumst við nýjum reglum þegar þær berast og vonandi náum við að opna æfingasvæðið og vetrarvöllinn þegar þetta bann er liðið.