04/06/2022
ZO – ON OPEN var leikið á Urriðavelli í dag við verulega góðar aðstæður bæði veðurfarslega og vallarlega. Keppt var í höggleik og punktakeppni ásamt fjölda aukaverðlauna fyrir lengstu teighögg og nándarverðlaun bæði í teighöggi og öðru höggi á völdum brautum. Alls voru skráðir 169 keppendur og 163 skiluðu skori.
Hér fyrir neðan má sjá úrslit og verðlaunahafa og hægt er að nálgast verðlaun á skrifstofu GO.
Höggleikur án forgjafar
Punktakeppni með forgjöf
Keppni var jöfn og spennandi og þrjár konur voru jafnar og efstar í punktakeppni allar með 38 punkta og því töldu síðustu þrjár holur til að skera úr um fyrsta sæti og síðustu 9 holur til að skera úr um 2. sætið.
Keppendur geta ekki tekið verðlaun í nema einum flokki, höggleikur ræður röð. Auka/Vinningaskrá:
2. braut: Næstur holu í tveimur:
Gisting fyrir tvo ásamt morgunverði á Northern Light Inn verðmæti 55.000-
Janusz Pawel Duszak 20 cm
3. braut: Lengsta teig högg. Út að borða fyrir tvo verðmæti 20.000-
Sigurður Björn Waage Björnsson
6.braut: Næstur holu í tveimur. Helgarleiga á bíl fra AVIS verðmæti 30.000-
Þórður Dagsson 2,78 m
8. braut: Næstur holu. Dúnúlpa frá ZO-ON að verðmæti 60.000-
Ingimar Guðbjartsson 73 cm
9. braut: Lengsta teighögg kvk Dömuúr frá Leonard að verðmæti 50.000-
Þóra Sigríður Sveinsdóttir
10. braut: Lengsta teighögg kk. Herraúr frá Leonard að verðmæti 50.000-
Sigurður Björn Waage Björnsson
13. braut: Næstur holu. Ferða taska frá ZO-ON að verðmæti 20.000-
Jóhanna Halldórsdóttir 1,63 m
Dregið var úr skorkortum:
AVIS helgarleiga á bíl að verðmæti 30.000 – Steinn Jónsson
AVIS helgarleiga á bíl að verðmæti 30.000 – Jónas Gestur Jónasson
AVIS helgarleiga á bíl að verðmæti 30.000 – Erla Eiríksdóttir
Aðgangur í flot (AURORA FLOATING) fyrir tvo – Halldór Þórður Oddsson
Hvala sigling fyrir 4 að verðmæti 25.000 – Jón Sigurður Garðarsson
Golfklúbburinn Oddur þakkar keppendum innilega fyrir komuna. Við þökkum ZO – ON fyrir samstarfið. Hrósum Öðlingi Mathúsi fyrir flottan dag í veitingum og starfsfólk í ræsingu og Baldur í vallaraðstoðinni fá svo að sjálfsögðu lokahrósið.