06/10/2015
Veitingasalan í golfskálanum á Urriðavelli hefur verið lokað og var síðasti starfsdagurinn hjá Nikka og Pálu á þessu golfsumri í gær. Urriðavöllur er enn opinn til golfleiks en kylfingar eru beðnir um að taka með sér nesti ætli þeir að leika 18 holur.
Heitt verður á könnunni fyrir þá kylfinga sem setjast niður fyrir eða eftir golfhring á Urriðavelli á meðan golfskálinn er opinn.