02/08/2018
Við áttum afmæli þann 14. júní síðastliðinn og fögnuðum því með léttri veislu þá en nú er komið að því að halda formlega upp á afmælisárið. Næstkomandi mánudag 6. ágúst ætlum við að halda afmælisboð þar sem bæði félagsmönnum er boðið ásamt góðum gestum. Veislan byrjar klukkan 14:00 og að loknum léttum ræðuhöldum bjóðum við upp á léttar veitingar, afmælisköku og kaffi.
Okkur þætti ánægjulegt ef þú gætir litið við og fagnað deginum með okkur.
F.h. stjórnar og starfsfólks GO
Elín Hrönn Ólafsdóttir, formaður