27/04/2022
Sunnudaginn 1. maí klukkan 11:00 ætlum við að halda loksins aftur vorfund eftir nokkurt hlé en síðasti vorfundur var haldinn 2019. Við verðum að sjálfsögðu með heitt á könnunni og eitthvað bakkelsi með. Á fundinum verður farið yfir þau mál sem framundan eru í starfi klúbbsins og við hvetjum félagsmenn til að mæta.
Á fundinum verður fjallað um,
– Stöðuna á skipulagsmálum og stækkun vallarins
– Nýir veitingaaðilar kynntir
– Opnun vallar
– Önnur mál