18/04/2018
Vorfundur Golfklúbbsins Odds fer fram laugardaginn 21. apríl næstkomandi í klúbbhúsinu á Urriðavelli.
Húsið opnar kl. 9:30 og verður boðið upp á léttan morgunverð og kaffi.
Fundurinn hefst svo stundvíslega kl. 10:00.
Á fundinum verður farið yfir þau mál sem framundan eru í starfi klúbbsins og fundargestum gefið tækifæri til að koma með spurningar og ábendingar um starf GO. Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna og taka virkan þátt í félagsstarfi klúbbins.
Meðal þess sem er á dagskrá fundarins er eftirfarandi.
– Vallarframkvæmdir,
– Staða á byggingu vélageymslu
– Staðan á skipulagsmálum og stækkun vallarins
– Opnun vallar
– Vinavellir GO 2018
– Hvað er framundan í félagsstarfi
– Önnur mál
Kveðja,
Stjórn GO